.png)
Persónuvernd Skín og Bón ehf.
Samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga
Gildir frá: 22/04/2026
Skín og Bón ehf., kt. 660225‑1020, Dalshraun 8, 220 Hafnarfirði („fyrirtækið“, „við“, „okkur“), vinnur persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 og almennu persónuverndarreglugerð Evrópu (GDPR). Þessi stefna gildir um þjónustu okkar á staðnum, á vefsíðu og í appinu okkar.
​
1. Ábyrgðaraðili
Skín og Bón ehf.
Dalshraun 8
220 Hafnarfjörður
Netfang: skin@skin.is
​
2. Hvaða persónuupplýsingar við vinnum
Við vinnum aðeins þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru fyrir rekstur, þjónustu og appnotkun.
​
2.1 Almennar upplýsingar
-
Nafn
-
Símanúmer
-
Netfang
-
Kennitala (ef hún er notuð fyrir reikninga eða fyrirtækjaviðskipti)
-
Upplýsingar um bókanir og samskipti
-
Greiðsluupplýsingar (við geymum ekki kortanúmer)
​
2.2 Upplýsingar um ökutæki
-
Bílnúmer
-
Tegund og þjónustusaga
-
Skráning bílnúmeralestrar (ANPR) við komu og brottför
-
Tímasetningar komu og brottfarar​
​
2.3 Upplýsingar sem safnast í appinu
-
Notendaaðgangur (innskráning, dulkóðað lykilorð)
-
Stillingar notanda
-
Kaupsaga og notkun þjónustu
-
Staðsetning (ef notandi veitir leyfi)
-
Tæknilegar upplýsingar: gerð tækis, stýrikerfi, IP‑tala, app‑útgáfa
-
Tilkynningastillingar (push notifications)
​
2.4 Myndavélavöktun
Við notum öryggismyndavélar á svæðinu til að tryggja öryggi, vernda eignir og styðja við rekstur.
Myndavélar geta tekið upp:
-
myndir af fólki
-
myndir af ökutækjum
-
bílnúmer
-
ástand ökutækja, t.d gallar, beyglur, rispur, ósamþykktur og búnaður, samkvæmt skilmálum Skín og Bón ehf
​
3. Tilgangur vinnslu
Við vinnum persónuupplýsingar til að:
-
veita og framkvæma bílaþvott og tengda þjónustu
-
reka og bæta appið og stafræna þjónustu
-
hafa samband vegna bókana eða þjónustu
-
auðkenna notendur í appinu
-
tryggja öryggi og koma í veg fyrir tjón
-
uppfylla lagaskyldur, t.d. varðveislu bókhaldsgagna
-
senda tilboð og markaðsefni (ef samþykki er veitt)
​
4. Lagagrundvöllur vinnslu
Vinnsla persónuupplýsinga byggir á:
-
Samningi – þegar þú notar appið eða kaupir þjónustu
-
Lögmætum hagsmunum – t.d. öryggismyndavélar, bílnúmeralestur og þjónustubætur
-
Lagaskyldu – t.d. varðveisla bókhaldsgagna
-
Samþykki – t.d. fyrir markaðssetningu, staðsetningarþjónustu eða tilkynningum í appi
​
5. Varðveislutími
Við varðveitum persónuupplýsingar aðeins eins lengi og nauðsynlegt er:
-
Bókhaldsgögn
-
Þjónustusaga ökutækja
-
Notendagögn í appi
-
Myndavélaupptökur
-
Bílnúmeralestur
-
Tæknilegar upplýsingar úr appi
​
6. Deiling persónuupplýsinga
Við deilum upplýsingum aðeins þegar nauðsynlegt er:
-
þjónustuaðilum sem vinna fyrir okkur (t.d. appþróun, greiðslumiðlun, bókhald, tækniaðilar)
-
opinberum aðilum ef skylt er samkvæmt lögum
Við seljum aldrei persónuupplýsingar.
​
7. Öryggi upplýsinga
Við notum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir til að vernda gögn gegn ólögmætum aðgangi, breytingum, glötun eða birtingu.
Þetta á sérstaklega við um appið, þar sem notuð eru:
-
dulkóðuð samskipti
-
örugg auðkenning
-
reglulegar uppfærslur
-
aðgangsstýringar
​
8. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
-
fá aðgang að eigin persónuupplýsingum
-
fá leiðréttingu á röngum upplýsingum
-
krefjast eyðingar þegar lög leyfa
-
takmarka vinnslu
-
mótmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum
-
fá gögn afhent á flytjanlegu formi
-
draga samþykki til baka hvenær sem er
Beiðnir má senda á: skin@skin.is
​
9. Kvartanir
Ef þú telur að vinnsla brjóti gegn lögum nr. 90/2018 getur þú leitað til okkar eða;
Persónuverndar.
www.personuvernd.is
​
10. Breytingar á stefnu
Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra þessa stefnu í samræmi við breytingar á lögum eða verklagi fyrirtækisins. Breytingar taka gildi við birtingu á vefnum og í appinu.